Læri læri læri..... o.s.frv.
Jamm og já. Ýmislegt sem ég er að frétta um mig þessa daganna.
Vissir þú að brjóstin á mér líta út eins og rassaskora???.. Nei... ekki ég heldur (allavega vona ég að þú hafir hugsað "Nei.. glætan..!") Ójú... Glæta!
Sko.. Svona er málið með vexti:
Eins og einver veit kannski þá var ég í haust skipuð í stjórn Haxa (hagsmunafélagi líffræðinema) og hlaut ég þá þann virðulega titil "Fyrstaársfulltrúi líffræðinema". Nema hvað að settar voru inn myndir af stjórinni á heimasíðu haxa og þar sást í brjóstaskoru á sumum og rassaskoru á öðrum og svona ýmislegt ósmekklegt sumum til skemmtunnar. Ekkert subbulegt svosem en kannski þetta særði blygðunarkennd einhverra... sem er mjög skyljanlegt þar sem við eigum að heita virðulegir háskólamúmínálfar. Reyndar er núna búið að setja inn svona þokkalega dísent myndir:
http://haxi.hi.is/modules/xoopspartners/mér reyndar til nokkurar ánægju.
Ok.. málið er þetta á málefni.is fór af stað umræða um þessar myndir
(
http://malefnin.com/ib/index.php?showtopic=45557&st=0)
... sem er enn mjög gott og blessað en bíðið við... hvað rekur maður augun í.
Quote:"Neðsta myndin er augljóslega af karlmanni, efsta myndin gæti allt eins verið af óhærðum karli, og ég sé ekki betur en að myndin af Tryggva sé af manni að drekka úr glasi (hvað ætli sé í glasinu?). Þá eru eftir þrjár myndir: Ein er af loðinni karlmannsbringu, önnur af kvenmannsbringu, og myndin af Hrönn gæti allt eins verið af "rear cleavage" eins og "front cleavage". Ég myndi jafnvel veðja á að Hrönn hafi sýnt á sér rassinn, og þá erum við með jafnvægi: Ein karlmannsbringa (Sævar) og ein kvenmannsbringa (Karólína), einn karlsrass (Sindri) og einn kvenrass (Hrönn). Síðan fáum við klof á karli (Ásgeir) og eina mynd af ferða-gullregni."
Quote Hrönn:WHAT IN´THA..!
:-ÞJahá segi ég nú bara... ég er ennþá að reyna að gera upp við mig hvort ég eigi að taka þessu sem hrósi (stór brjóst) eða dissi (ljót brjóst). . .
Ætli maður velji ekki bara hrósið... Þá líður mér vel
:)Svo var ég reyndar að hugsa um að standa aðeins meira undir nafni og fara að troða rassinum mínum framan í myndavélar vegna þess að ég á víst að vera einhvernvegin þannig (hoho that´s butt a la hronn)
:)Pæling: Ég þarf í raun ekki að sýna á mér rassinn... ættli það sé ekki nóg að sýna smá brjóstaskoru.. þá mun margur maðurinn reka upp stór augu.
Hrönn Prumpubrjóst