6. jún. 2005

Tíminn er kominn...

... til að Galvanisera. Með öðrum orðum: Örva! Ég fletti því upp. Jú ég er semsagt komin í vaktafrí og það er bara rólegheit og sonna. Maður gerir hluti sem maður nennir ekki að gera dagsdaglega, eins og t.d. að fletta upp orðinu "galvanise".

Sumarið er komið. Steinunn að fara upp í veiðihúsin sín og hann Yann, jú, einhver verður að telja og merkja blessuðu fuglanna.

Loksins er maður líka búinn að fá út úr prófunum og get ég svo sannarlega sagt að það hafi gengið vonum framar... Sem er gott! Mjög gott!

Vinnan mín er líka byrjuð og ég farin að líta út einsog blettatígur, "mjJJAá"! Nei... ég er ekki með veiðihár en blettina hef ég. Sumir kalla þetta Marbletti en persónulega finnst mér blettatígur meira cult. Hei!...Hugmynd: Í dag ætla ég að telja alla blettina mína...

Sjáumst

Hrönn
mjá