25. nóv. 2005

Dýraland

Vegna fjölda áskorana hef ég ákveðið að blogga. Nei, Nú lýg ég.. bara ein eða tvær en hei.. er það ekki fjári nóg!
Jú hvað hefur gerst síðan síðast? Kisi kom í heiminn og lenti á Hranbraut 1. Kisi heitir Leonardo Corgan, langoftast kallaður bara Leo. Hann er sætur mjási sem er líka Kjánaprik.


Hr. LEO

Einnig er gaman að segja frá því að við vorum að skoða djúpsjávarfiska í skólanum um daginn og tók ég nokkrar myndir.

Brjóskfiskar sem eru ekki skyldir neinu:

Hámýs

Fiskur sem kallaður er Barbapabbi:

Hveljusogsfiskur

Þessa mynd tók ég ekki en mér finnst hún afskaplega skemmtileg...

Hatchetfish

Annars eru aðeins tveir sólarhringar í fyrsta próf og því fer ég núna að hundskast að læra eitthvað.. á móti kemur að ég er búin 14. des JEEEEIIIJJJ